Stjórn NOREX hefur kosið Jukka Ruuska, stjórnarformann NOREX, en Jukka er forstjóri HEX Integrated Markets.

Í kjölfar undirritunar nýs NOREX samstarfssamnings þann 7. apríl sl. varð HEX Integrated Markets hluthafi í Nordic Exchanges A/S.

Kauphallirnar í Oslo og Kaupmannahöfn seldu báðar 9% hlutafjár til HEX Integrated Markets og hlutafjáreign í Nordic Exchanges A/S skiptist nú þannig: HEX Integrated Markets: 50% (að meðtöldu hlutafé sem var áður í eigu Stockholmsbörsen, Oslo Børs: 23%,Copenhagen Stock Exchange: 23% og Kauphöll Íslands: 4%.

NOREX er samstarf norrænna kauphalla. Kauphallasamstarfið er einstakt fyrir þær sakir að vera fyrst til setja á laggirnar sameiginlegt viðskiptakerfi og taka upp samræmdar reglur fyrir aðild og viðskipti. NOREX mynda Kauphöll Íslands auk Copenhagen Stock Exchange, Oslo Børs, og HEX Integrated Markets fyrir hönd Stockholmsbörsen, Helsinki Exchanges, Tallinn Stock Exchange and Riga Stock Exchange.