Nýr styrktarsjóður hefur verið stofnaður við Háskóla Íslands, Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur. Stofnskrá sjóðsins var undirrituð í dag af Kristínu Ingólfsdóttur rektor og Ingibjörgu R. Magnúsdóttur, stofnanda sjóðsins. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur er fyrsti sjóðurinn á Íslandi sem veitir styrki til rannsókna í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum og verða veittir styrkir til hjúkrunarfræðinga og ljómæðra í doktorsnámi, sem falla að markmiði sjóðsins.

Stefna hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands er að efla framhaldsnám til meistara- og doktorsprófs, sem samrýmist stefnu skólans í þeim efnum, enda vaxtarbroddur hverrar fræðigreinar fólginn í framhaldsnemendum hennar. Rannsóknasjóður Ingibjargar R. Magnúsdóttur er því mikill stuðningur við doktorsnema og rannsóknaverkefni í hjúkrunafræðum.

Ljósmæðrafélag Íslands, Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Glitnir og Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði hafa lagt fram fé til sjóðsins auk framlags Ingibjargar og bróðurdóttursonar hennar, Magnúsar F. Guðrúnarsonar. Þar fyrir utan hefur sjóðnum borist fjölmargar gjafir fyrir tilstuðlan dr. Sigrúnar Gunnarsdóttur hjúkrunarfræðings.

Hjúkrunarfræðinám á Íslandi var fært upp á háskólastig árið 1973 með stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Stofnun námsbrautarinnar markaði upphaf rannsókna í fræðunum hér á landi. Þá hófst kennsla í undirstöðuþáttum rannsókna sem síðan hafa eflst og vaxið.

Árið 1998 var aftur brotið blað í sögu hjúkrunarfræðimenntunar á Íslandi með tilkomu meistaranáms í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og árið 2000 varð námsbraut í hjúkrunarfræði sjálfstæð deild innan skólans, hjúkrunarfræðideild. Deildin setti sér það markmið að efla enn frekar framhaldsnám hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra og árið 2005 voru fyrstu nemendurnir skráðir í doktorsnám við deildina.

Ingibjörg R. Magnúsdóttir hjúkrunarfræðingur er fyrrverandi námsbrautarsjóri námsbrautar í hjúkrunarfræði Háskóla Íslands og skrifstofustjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Ingibjörg hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar hjúkrunarmenntunar hér á landi og var hún ein þerra sem stóð að stofnun námsbrautar í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands.

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands, allt frá stofnun skólans. Flestir starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og er þeim ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk.