Nýverið skipaði þýska Liebherr samsteypan Hýsi ehf. í Mosfellsbæ nýjan umboðsaðila fyrir tæki og vélar sem Liebherr framleiðir.

Er þar um að ræða byggingakrana, jarðvinnuvélar, bílkrana, steypustöðvar og hafnkrana.

Hýsi mun annast sölu tækja, véla og varahluta en þjónusta verður í höndum DS Lausna ehf.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hýsi ehf.