Rúnar Pálmason hefur tekið við starfi  upplýsingafulltrúa Landsbankans en staðan var auglýst í október og Rúnar var valinn úr stórum hóp umsækjenda.

Rúnar er með BA-gráðu í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og MA-gráðu í Evrópufræðum frá Háskólanum í Maastricht í Hollandi.

Rúnar starfaði sem blaðamaður og vaktstjóri á fréttadeild Morgunblaðsins á árinum 2000-2013 en hann hóf störf sem vefritstjóri hjá Landsbankanum í mars 2013.