Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherrar, afhenti eftirmenni sínum, Gunnari Braga Sveinssyni, nýjum ráðherra Framsóknarflokksins, lyklana að utanríkisráðuneytinu í dag. Össur hefur gegnt embætti utanríkisráðherra frá 1. febrúar árið 2009.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu að Gunnar Bragi er fæddur árið 1968. Hann hefur setið á Alþingi frá 2009 og verið formaður þingflokks framsóknarmanna frá sama tíma. Sat  í utanríkismálanefnd 2011-2013, iðnaðarnefnd 2009-2011 og þingskapanefnd 2011-2013. Gunnar Bragi var aðstoðarmaður félagsmálaráðherra 1997-1999. Hefur auk þess sinnt ýmsum störfum, m.a. sem framkvæmdastjóri, markaðsstjóri, verslunarstjóri og ritstjóri. Maki Gunnars Braga er Elva Björk Guðmundsdóttir og eiga þau fimm syni.