Elsa Guðrún Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf útibússtjóra Arion banka í Fjallabyggð. Forveri hennar í starfi var Oddgeir Reynisson, en hann hafði verið útibússtjóri bankans frá árinu 2015. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Arion banka.

Elsa Guðrún er 32 ára viðskiptalögfræðingur frá Háskólanum á Bifröst, en hún er einnig með ML gráðu frá sama skóla. Auk þess er hún vottaður fjármálaráðgjafi. Hún starfaði áður sem fjármálaráðgjafi hjá Arion banka í Fjallabyggð frá árinu 2015. Þar á undan starfaði hún meðal annars hjá Creditinfo.

Guðrún Elsa er einnig margfaldur Íslandsmeistari í skíðagöngu og fyrr á árinu tók hún, fyrst kvenna, þátt fyrir Íslands hönd í skíðagöngu á Ólympíuleikunum. Hún er gift Kristófer Beck Elíssyni og eiga þau tvö börn.