Nýr vefmiðill var stofnaður í dag og ber hann nafnið Rómur . Miðillinn er fyrst og fremst hugsaður til pistlaskrifa en fastir höfundar við stofnun eru 35 talsins. Markmiðið miðilsins að sögn stofnenda er að skapa vettvang fyrir ungt frjálslynt fólk til að skipa sér stærri sess í samfélagsumræðunni.

Í tilkynningu segir að stefna Róms sé að hafa fagmennsku að leiðarljósi en miðill er rekinn sem frjáls félagasamtök, fjármögnuð einungis af stofnendum miðilsins og ekki rekinn í hagnaðarskyni.

„Stefnan er að vikulega birtist að lágmarki þrír pistlar Rómverja, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum, auk ritstjórnargreinar á sunnudögum. Jafnframt mun listrænum gildum vera gert hátt undir höfði en reglulega birtast myndaseríur frá ljósmyndurum Róms. Í dag ómar Rómur í fyrsta sinn. Megi hann bylja sem hæst í eyrum þeirra sem eiga leið um netheima,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir jafnframt í fyrsta ritstjórnarpistli Róms : „Rómur er þannig hugsaður sem mótvægi við þeim jaðarskoðunum sem flesta dálka hafa fengið í dagblöðum landsins og flætt yfir bakka athugasemdakerfanna. Um leið er miðillinn tækifæri fyrir ungt fólk til þess að skipa sér sess og hefja upp raust sína.“