Á forsíðu vefs ríkissáttasemjara má nú sjá tímalínu lausra kjarasamninga til ársloka 2019 en fjölmargir samningar renna út fram að þeim tíma. Má t.d. nefna að í ágúst á þessu ári renna 29 samningar út, 77 í desember 2018 og í mars 2019 losna 128 samningar, samkvæmt þessu yfirliti. Alls losna 50 kjarasamningar á þessu ári, á næsta ári losna 80 samningar og 138 kjarasamningar renna út árið 2019. Þetta kemur fram í fréttatilkynnigu frá Ríkissáttasemjara.

Önnur áhugaverð nýjung á forsíðu vefsins er dagatal embættisins. Þar er hægt að sjá hvaða samningafundir eru bókaðir hjá embættinu á hverum tíma. Þessi nýjung ætti að gagnast mörgum, ekki síst blaða- og fréttamönnum, þegar fundum vegna kjaradeilna fjölgar hjá ríkissáttasemjara.

Á vefnum er einnig að finna ársskýrslu ríkissáttasemjara fyrir árið 2016, sem er að þessu sinni eingöngu birt á heimasíðu embættisins  en ekki gefin út á prenti, ásamt greinargóðum upplýsingum um hlutverk ríkissáttasemjaraembættisins, vinnudeilur, samsetningu vinnumarkaðarins, kjarasamninga og fleira, eins og sjá má á nýjum vef embættisins .