Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði vefinn tekjusagan.is á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Vefurinn veitir aðgang að gagnagrunni um lífskjör landsmanna sem byggir á ópersónugreinanlegum upplýsingum úr skattframtölum allra einstaklinga á Íslandi frá árinu 1991 til 2017. Hver sem er getur skoðað þróun ráðstöfunartekna mismunandi hópa, áhrif skatta og bóta auk félagslegs hreyfanleika. Verkefnið hefur tvisvar verið kynnt á samráðsfundum stjórnvalda með aðilum vinnumarkaðarins og hefur svo þróast áfram í samskiptum forsætisráðuneytisins og heildarsamtaka á vinnumarkaði en síðustu tvo mánuði hafa 80 einstaklingar úr ráðuneytum og samtökum á vinnumarkaði haft aðgang að vefnum með það að markmiði að gera hann sem bestan úr garði.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir Tekjusöguna vera mikilvægt innlegg í samráð stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. „Það er þörf á áreiðanlegum og óumdeildum gagnagrunni með launatölfræði sem allir hafa aðgang að til að hægt sé að leggja mat á launaþróun auk áhrifa skatta og bóta með óumdeildum og áreiðanlegum hætti. Ég tel að með Tekjusögunni séum við komin með styrkan grundvöll undir umræður um kjaramál,“ segir Katrín og bætir við: „Það er lykilatriði fyrir stjórnvöld að hafa aðgang að áreiðanlegum upplýsingum þegar kemur að stefnumótun og ákvarðanatöku. Tekjusagan gerir okkur kleift að sjá hvernig lífskjör mismunandi hópa hafa þróast, hvaða hópum hefur vegnað vel og hvaða hópar þurfa sérstaka athygli.“

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra: „Þessi vinna er, eftir því sem við komumst næst, einstök á evrópska vísu. Aldrei áður hefur verið farið í jafn yfirgripsmikla og ýtarlega gagnasöfnun og rannsókn á lífskjaraþróun á Íslandi. Það er ánægjulegt að sjá að okkur hefur miðað áfram og að allir hafa það betra þótt, eins og fram kom í máli forsætisráðherra, módelið sýni okkur hópa sem hafa ekki notið eins mikils vaxtar og við vildum. Það gefur okkur um leið tækifæri til að bregðast við því með markvissum aðgerðum.“

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra: „Gögn og gagnasöfnun eru mikilvægur þáttur í samfélaginu í dag. Þetta verkefni gerir okkur kleift að tala um staðreyndir á nýjan og gagnsæjan hátt. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem fást í Tekjusögunni getum við mótað stefnu á markvissari hátt en áður. Það vekur sérstaka athygli mína að sjá staðfestingu á því að félagslegur hreyfanleiki sé einstaklega mikill á Íslandi. Það segir mér að við búum í landi tækifæranna.“

Skoða má vefinn hér .