Nýr viðskiptahraðall fyrir sprotafyrirtæki í ferðaþjónustu hefur verið settur á laggirnar. Hann ber nafnið Startup Tourism og hefst 1. febrúar 2016.

Markmið hraðalsins er að efla frumkvöðlastarf innan ferðaþjónustugreinarinnar sjálfrar sem og að ýta undir atvinnu- og verðmætasköpun á Íslandi.

Einnig er honum ætlað að miðla þeirri þekkingu sem orðið hefur til á undanförnum árum og áratugum og efna til umræðu um þær áskoranir og tækifæri sem bíða frumkvöðla innan iðnaðarins.

Sprotahraðallinn mun veita tíu fyrirtækjum ráðgjöf, aðstoð, og fræðslu frá ýmsum sérfræðingum, fjárfestum og reyndum frumkvöðlum.

Hraðallinn er samstarfsverkefni Klak Innovit ásamt Íslandsbanka, Isavia, Vodafone, Bláa Lónsins og Íslenska ferðaklasans.

Hérlendis eru þegar starfandi tveir viðskiptahraðlar, Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík. Samtals hafa 54 fyrirtæki tekið þátt í þeim frá árinu 2012, og hafa þeir gefið góða reynslu.