66°Norður hefur samið við Salesforce.com og fyrirtækið Cloud Engineering, samstarfsaðila Salesforce á Íslandi, um innleiðingu á Salesforce Sales Cloud viðskiptahugbúnaðinum hjá 66° Norður.

Fyrirtækið Salesforce.com er hugbúnaðarfyrirtæki sem var meðal annars útnefnd „Most Innovative Company of the Year“ af tímaritinu Forbez síðustu tvö ár. Fyrirtækið veitir viðskiptahugbúnað í tölvuskýi með áherslu á hugbúnað fyrir sölu, þjónustu og markaðssetningu. 150.000 fyrirtæki um allan heim nota salesforce og eru þar á meðal fyrirtæki á borð við General Electric og NBCUniversal. Á Íslandi eru stærstu notendur kerfisins Síminn og Marel.

Á Íslandi sér Cloud Engineering um innleiðingu á hugbúnaðinum. Í sameiginlegri tilkynningu 66°Norður og Cloud Engineering er haft eftir Arnari Laufdal Ólafssyni, framkvæmdastjóra þess síðarnefnda, að hann búist við að kerfið muni umbylta samskiptum 66°Norður við samstarfsaðila sína og ýta undir vöxt félagsins erlendis. Undir það tekur Styrmir Karlsson hjá 66°Norður.