Nýsir hefur selt skuldabréf fyrir 950 milljónir króna að nafnverði, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar en skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði til fagfjárfesta.

Ákveðið var að stækka skuldabréfaflokk félagsins NYSI 03 1 en hann er skráður í Kauphöll Íslands. Heildarnafnverð skuldabréfaflokksins er 1.400 milljónir króna eftir stækkun. MP Fjárfestingarbanki var umsjónaraðili skuldabréfaútboðsins og lokagjalddagi skuldabréfanna er í júlí 2008.