Stjórn fasteignaþróunarfélagins Nýsis ákveðið að stækka skuldabréfaflokk félagsins NYSI 03 1 um 600 milljónir króna að nafnverði, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Félagið stækkaði flokkinn um 950 milljónir króna í fyrra og var fjármagnið nýtt til að kaupa hlut í breska fasteignaumsýslu- og þjónustufyrirtækinu Operon.

Heildarnafnverð skuldabréfaflokksins er eftir stækkun tveir milljarðar króna. Lokagjalddagi skuldabréfanna er í júlí 2008. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði til fagfjárfesta og var MP Fjárfestingarbanki umsjónaraðili skuldabréfaútboðsins.