Creditinfo veitti í gærkvöldi þremur fyrirtækjum sérstök verðlaun þegar kynntur var listi yfir þau fyrirtæki sem komust á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki, eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um.

Með blaðinu í dag fylgir sérstakt blað yfir framúrskarandi fyrirtæki.

Þorbjörn fékk verðlaun fyrir nýsköpun

„Í ár er veitt viðurkenning fyrir nýsköpun í rótgrónu fyrirtæki í fyrsta sinn. Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar hjá öllum fyrirtækjum, ekki bara sprotafyrirtækjum," segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

“Sérstök dómnefnd, skipuð fulltrúum allra aðildarfélaga Samtaka atvinnulífsins (SI, SVÞ, SFF, SFS, Samorku og SAF), valdi Þorbjörn hf. í Grindavík. Enn fremur voru tilnefnd eftirfarandi fyrirtæki: Hampiðjan, Icelandair Group, Bláa lónið og Reiknistofa bankanna.

Þorbjörn hf. hefur fylgt þeirri hugmyndafræði að finna aðferðir til að fullnýta sjávarfang í sinni framleiðslu með sjálfbærni að leiðarljósi.

Félagið var brautryðjandi í pækilsöltun á sjó á sínum tíma og hefur tekið þátt í þróunarverkefnum við að betrumbæta flokkunarkerfi fyrir saltfiskflök. Þessi áhersla þeirra á sjálfbærni hefur leitt af sér verðmætasköpun í dótturfélögunum Haustaki og Codland.

Bæði félögin nýta sjávarafurðir og skapa nýjar vörur úr hráefni sem áður var hent. Codland hefur meðal annars þróað aðferðir til að vinna Collagen úr fiskroði og framleiðir heilsudrykkinn Öldu úr því.

Þorbjörn hf. hefur einnig unnið að nýsköpun í mennta- og fræðslumálum, m.a. með samstarfi við Háskólann í Reykjavík og með því að bjóða unglingum í Grindavík upp á að sækja vinnuskóla til að efla áhuga ungs fólks á sjávarútvegi.“

Tvö önnur fengu sérstök verðlaun

„Grillmarkaðurinn hf. fékk viðurkenningu fyrir að vera yngsta fyrirtækið í erfiðasta atvinnugeiranum, en hæsta vanskilahlutfall fyrirtækja er í starfsemi veitingahúsa- og gististaða. Félagið var stofnað árið 2011 og hefur reksturinn gengið mjög vel frá upphafi“ segir í tilkynningunni.

„Fálkinn hf. fékk jafnframt viðurkenningu fyrir að færast upp um flest sæti milli ára eða um 364 sæti. Félagið var í sæti 648 í fyrra en er nú í sæti 284 á listanum.“