Ef lagt er mat á nýsköpun í hagkerfinu eru Íslendingar í 14. sæti ríkja í Evrópu og er það svipuð frammistaða og síðastliðin fimm ár þar sem Ísland hefur verið í 13.-15. sæti. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu European Innovation Scoreboard 2008 þar sem borin er saman nýsköpun í ríkjum Evrópu.

Í mörg ár hafa Finnar verið í einu af efstu sætunum en á fundi SA í síðustu viku var því lýst hvernig Finnar sköpuðu með markvissum hætti nýsköpunarsamfélag að lokinni efnahagskreppunni sem yfir þá gekk á árunum 1991 - 1994.