Háskóli Íslands og Bandaríska sendiráðið á Íslandi leita nú að þátttakendum fyrir nýsköpunarhraðalinn Academy for Women Entrepreneurs (AWE) sem er sérstaklega ætlaður konum og hefst nú 3. febrúar og lýkur með útskrift þann 6. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu. Verðlaun eru veitt í lok hraðalsins.

Umsóknarfrestur rennur út á mánudaginn, 17. janúar, en bæði einstaklingar og lið geta tekið þátt í hraðlinum. Nýsköpunarhraðallinn er þátttakendum að kostnaðarlausu, en 50 viðskiptahugmyndir verða teknar inn að þessu sinni. Hægt er að skrá sig til þátttöku í hraðlinum á vef AWE .

Sjá einnig: Nýsköpunarhraðall sem eflir konur

Þetta er í annað sinn sem hraðalinn er haldinn en markmið hans er að styðja konur í að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar og fyrirtæki og auka hlut þeirra innan frumkvöðla- og nýsköpunargeirans. Jafnframt er tilgangur hraðalsins að bjóða upp á fræðslu og efla tengslanet kvenna.

Nýsköpunarhraðallinn samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Management við Ríkisháskólann í Arizona og þrettán vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um. Þar njóta þátttakendur m.a. leiðsagnar reyndra kvenna í nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi við uppbyggingu fyrirtækja, mynda ný tengsl og efla starfsþróun og starfshæfni.

Lögð er rík áhersla á að konur alls staðar af landinu og með fjölbreyttan bakgrunn og uppruna taki þátt. Fyrirkomulag hraðalsins er því með þeim hætti að flestar vinnulotur eru í streymi.

Verðlaun eru veitt fyrir bestu viðskiptahugmyndina bæði í einstaklings- og teymisflokki:

  • 1. sæti - 500.000 kr.
  • 2. sæti - 300.000 kr.
  • 3. sæti - 200.000 kr.

Einnig eru veitt verðlaun fyrir "pitch" keppni að upphæð 200.000 kr.

Í fyrra komust færri konur að en vildu og því hefur verið ákveðið að fjölga þátttakendum þannig að fulltrúar allt að 50 viðskiptahugmynda verða teknir inn að þessu sinni. Hægt er að skrá sig til þátttöku í hraðlinum á vef AWE. Þar eru einnig frekari upplýsingar um fyrirkomulag hraðalsins og upptaka af kynningarfundi sem fram fór í lok síðasta árs.