170 einkahlutafélög voru nýskráð í júnímánuði en þau voru 185 í júní í fyrra, samkvæmt tölum Hagstofunnar.  Nýskráningar voru flestar í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á ökutækjum. Fyrstu 6 mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 1.023, en það er 11% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 922 fyrirtæki voru skráð.

Þá voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júnímánuði, flest í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á ökutækjum. Fyrstu 6 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 531, en það er rúmlega 7% fækkun frá sama tímabili í fyrra þegar 572 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.