Sala á nýjum bílum breyttist lítið á milli ára á fyrri helmingi ársins, samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu. Frá janúar á þessu ári og fram til loka maí voru 3.336 fólksbílar nýskráðir. Þetta er aðeins tveimur færri bílum en voru nýskráðir á sama tíma í fyrra. Samdrátturinn nemur 0,1%.

Í síðasta mánuði fækkaði bílunum hins vegar talsvert á milli ára. Aðeins voru 1.424 bílar nýskráðir en það var 112 bílum færra en í maí í fyrra. Samdrátturinn nemur 7,3% á milli ára.