Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá október 2013 til september 2014, hefur fjölgað um 10% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.047 ný félög skráð á tímabilinu. Mesta fjölgunin á nýskráningum er í flokknum Flutningar og geymsla, tæp 39% fjölgun á síðustu 12 mánuðum. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar.

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá október 2013 til september 2014, hafa dregist saman um 17% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 822 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum Upplýsingum og fjarskiptum hefur fækkað mest, eða um 31% fækkun á síðustu 12 mánuðum.