Það sem af er ári hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað en gjaldþrotum fækkað samanborið við sama tíma í fyrra.
Í febrúarmánuði voru skráð 149 ný einkahlutafélög, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum. Til samanburðar voru 154 ný einkahlutafélög skráð í febrúar 2012. Fyrstu 2 mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 327, en það er rúmlega 8% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 302 fyrirtæki voru skráð. Kemur þetta fram í tölum Hagstofunnar.
Þá voru 79 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í febrúarmánuði, flest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu 2 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 141, sem er rúmlega 28% fækkun frá sama tímabili í fyrra þegar 196 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.