Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá nóvember 2013 til október 2014, hefur fjölgað um 8% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Alls voru 2.036 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum 'Flutningar og geymsla' og í flokknum 'Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta', eða 34% á síðustu 12 mánuðum í hvorum flokk.

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá nóvember 2013 til október 2014, hafa dregist saman um 19% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 800 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum Upplýsingar og fjarskipti hefur fækkað mest, eða um 40% á síðustu 12 mánuðum.