Nýskráð hluta- og einkahlutafélög voru 2.642 á síðasta ári og fjölgaði um tæp 3% frá árinu 2008 þegar 2.571 ný félög voru skráð samkvæmt samantekt Hagstofunnar. Skipting nýskráninga eftir landsvæðum er nokkuð svipuð á milli ára en sem fyrr eru flestar nýskráningar á höfuðborgarsvæðinu eða 72%.

Flestar nýskráningar flokkaðar eftir atvinnugreinum eru eins og undanfarin ár í starfsemi eignarhaldsfélaga og leigu atvinnuhúsnæðis. Ríflega 20% nýskráðra félaga árið 2009 voru í þessum tveimur atvinnugreinum.

Skipting nýskráninga eftir landsvæðum er nokkuð svipuð á milli ára en sem fyrr eru flestar nýskráningar á höfuðborgarsvæðinu eða 72%. Nýskráningum á Vestfjörðum fjölgar hlutfallslega mest eða um ríflega 70% þar sem 76 ný félög voru nýskráð á síðasta ári samanborið við 44 árið 2008.