Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum voru 348.400, sem er 4% aukning frá sama mánuði árið áður. Herbergjanýting í mánuðinum var 73,7%, sem er lækkun um 4,1 prósentustig frá febrúar 2017 þegar hún var 77,8%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 8,8% mælt í fjölda herbergja.

Um 66% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 231.500. Gistinóttum á Norðurlandi fjölgaði um 34% frá febrúar fyrra árs .

Um 91% gistinátta voru skráðar á erlenda ferðamenn, en erlendum gistinóttum fjölgaði um 7% frá febrúar í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 16%. Bretar gistu flestar nætur eða 106.700, síðan Bandaríkjamenn sem gistu 77.000 nætur og Kínverjar gistu 26.900, en gistinætur Íslendinga voru 31.700.

Á tólf mánaða tímabili, frá mars 2017 til febrúar 2018, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.281.800 sem er 7% aukning miðað við sama tímabil árið áður.