Í framhaldi af breytingum á eignarhaldi Icebank var kjörið nýtt bankaráð á hluthafafundi í dag, 17. desember. Tveir stærstu sparisjóðir landsins, BYR og SPRON, hafa selt megnið af eignarhlut sín­um í bankanum til annarra sparisjóða, helstu stjórnenda bankans og utanaðkomandi fjár­festa.

Í tilkynningu vegna sölunnar segir að eftir viðskiptin eigi sparisjóðirnir áfram meirihluta, eða 57,3% hlutafjár. Með afnámi á öllum takmörkunum á eignarhaldi í samþykktum bankans og aðkomu nýrra hluthafa er stigið mikilvægt skref í framþróun hans og öflugri sókn innan lands og utan.

Úr stjórninni ganga Ragnar Zophonías Guðjónsson og Magnús Ægir Magnússon. Guðmundur Hauksson færist úr aðalstjórn í varastjórn. Nýir menn í stjórn eru Gísli Kjartansson, Grímur Sæmundsen og Steinþór Jónsson.

Nýtt bankaráð Icebank er þannig skipað:

Aðalmenn

Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri, Sparisjóði Svarfdæla

Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri, Sparisjóðnum í Keflavík

Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri, Sparisjóði Mýrasýslu

Grímur Sæmundsen, forstjóri, Bláa lóninu

Steinþór Jónsson, hótelstjóri, Hótel Keflavík

Varamenn

Ásgeir Sólbergsson, sparisjóðsstjóri, Sparisjóði Bolungarvíkur

Guðmundur Hauksson, forstjóri, SPRON

Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri, Sparisjóði Vestmannaeyja

Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri, Gámaþjónustunni

Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri, Vísi

Á fyrsta fundi nýs bankaráðs var Geirmundur Kristinsson kjörinn formaður og Grímur Sæmund­sen varaformaður.