Eimskip áformar að stofna nýtt fjárhagslega öflugt flutninga- og vörustjórnunarfyrirtæki en í tilkynningu frá félaginu kemur fram að nýtt endurskipulagt Eimskip mun einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni.

Þessar fyriráætlanir eru þó háðar samþykki lánardrottna Eimskips. Félagið mun leggja fram beiðni um nauðasamninga til héraðsdóms Reykjavíkur sem mun verða kynnt fyrir lánardrottnum.

Í tilkynningunni kemur fram að þetta muni ekki hafa áhrif á daglegan rekstur félagsins á sviði flutninga og vörustjórnunar. Greiðslur til birgja verða einnig með óbreyttum hætti.

Þá kemur fram að nýtt og endurreist félag verður að fullu í eigu lánardrottna Eimskips. Meðal þeirra er bandaríska fjárfestingarfélagið The Yucaipa Companies með um 32% eignarhlut sem jafnframt leggur félaginu til 15 milljónir evra. Þá selur Eimskip 49% hlutafjár í Versacold Atlas til Yucaipa, sem einnig hefur samið um kauprétt á 51% hlutafjár.

Þá kemur loks fram að Eimskip hefur selt þrjú gámaskip sem gerð voru út frá Noregi.

Fram kemur í tilkynningunni að Eimskipafélagið hefur unnið með erlendum og innlendum ráðgjöfum frá því í október 2008 að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins. Gríðarleg skuldsetning félagsins reyndist óviðráðanleg.

„Sú staða er afleiðing nokkurra illa ígrundaðra fyrirtækjakaupa erlendis og þeirri staðreynd að háar ábyrgðir féllu á félagið,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að samdráttaráhrif efnahagskreppunnar á mörkuðum innanlands og utan hafi aukið jafnframt vanda félagsins.

„Markmið stjórnar Eimskips er að hámarka endurgreiðslur til lánardrottna og tryggja áframhaldandi starfsemi á Íslandi og í Norður-Atlantshafi. Með þessu móti er einnig unnt að tryggja þau 1.500 störf sem nú eru hjá félaginu,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Eimskip Íslands tekur yfir hluta starfsseminnar

Eitt fyrsta skrefið í endurskipulagningunni er að færa hluta starfseminnar yfir í dótturfélag Eimskips, Eimskip Ísland ehf. Það verður í byrjun að fullu í eigu móðurfélagsins.

Eimskip Ísland ehf. verður að fullu í eigu lánardrottna en Landsbanki Íslands hf. mun eignast um 40% í félaginu og NBI um 5%.  Yucaipa breytir útistandandi veðtryggðum kröfum í hlutafé og fjárfestir jafnframt 15 milljónir evra í félaginu og eignast þannig um 32% í fyrirtækinu.

Þá kemur fram að ríflega fimmtíu aðrir lánardrottnar eignast 23% í Eimskip Íslandi ehf. Flestir þeirra eru íslenskir sjóðir og skuldabréfaeigendur, þ.m.t. nokkrir lífeyrissjóðir.

Þá kemur loks fram að núverandi hluthafar félagsins verða ekki í eigendahópi Eimskips Íslands og fulltrúar nýrra eigenda munu skipa nýja stjórn þess eftir endurskipulagningu.

Þá kemur einnig fram að veðtryggðir lánardrottnar Eimskips, Yucaipa, skilanefnd Landsbankans og Íslandsbanki hf., styðja þessar tillögur. Skilanefnd Landsbankans og Íslandsbanki hf. hafa samþykkt að halda áfram fjármögnun sem lýtur að fasteignum Eimskips Íslands ehf.

Eimskip mun nú leita eftir heimild til nauðasamninga og mun óveðtryggðum lánardrottnum gefast tækifæri til að kynna sér þessar tillögur. Að því loknu verða óveðtryggðir lánardrottnar beðnir um að greiða atkvæði. Reiknað er með að þetta ferli geti tekið 8 - 10 vikur og vonast er til að endurskipulagningu félagsins verði endanlega lokið á haustmánuðum.

Óveðtryggðar kröfur eru um 45% af heildarkröfum í Hf. Eimskipafélag Íslands. Eimskip áætlar að óveðtryggðir lánardrottnar fái um 12% upp í kröfur sínar. Gert er ráð fyrir að heildarniðurstaðan verði sú að um 61% af öllum kröfum á félagið séu tryggar.

Eimskip dregur sig út úr kæligeymslurekstri og lækkar rekstrarkostnað

Þá kemur jafnframt fram að Eimskip hefur samið um sölu á 49% hlutafjár Versacold Atlas til Yucaipa og jafnframt veitt fyrirtækinu forkaupsrétt að 51%. Yucaipa er stór fjárfestingarsjóður sem sérhæfir sig í fjárfestingum í smásölu, vörustjórnun og flutningi matvæla. Stærsta kæligeymslufyrirtæki Bandaríkjanna, Americold, er í eigu Yucaipa.

Söluferli Versacold Atlas hófst í september 2008 undir stjórn tveggja alþjóðlegra fjárfestingarbanka. Kauptilboð sem bárust voru mun lægri en vonir stóðu til og í raun óásættanleg, enda hefðu þau ekki dugað til að greiða niður skuldir félagsins sem stofnað var til við kaupin. Yucaipa, sem gerði tilboð í upphaflega ferlinu, lýsti áhuga á þátttöku í endurskipulagningu Eimskips meðal annars til að liðka fyrir sölunni á Versacold Atlas.

Yucaipa hefur yfirtekið 120 milljón evra lán ABN Amro sem hvíldi á Eimskip, sem undanfara að yfirtöku á Versacold Atlas. Yucaipa skipti hluta af ABN Amro láninu fyrir 49% hlut í Versacold Atlas og hefur eins og fyrr segir forkaupsrétt að því hlutafé sem eftir stendur.

Vegna sölunnar á Versacold Atlas mun Eimskip færa niður eignarhlut sinn í félaginu upp á 176 milljónir evra.