Nýtt farfuglaheimili fyrir 70 gesti á fjórum hæðum við Vesturgötu 17 verður opnað í Reykjavík á næstu vikum. Rekstraraðilar eru þeir sömu og Farfuglaheimilisins í Laugardal að því er kemur fram í fréttabréfi Ferðamálastofu.

Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á herbergin og móttökuna. Við viljum skapa fallega umgjörð þar sem öllum getur liðið vel, bæði gestum og starfsfólki. Sigríður Ólafsdóttir er rekstrarstjóri Farfuglaheimilanna í Reykjavík.

Gestum stendur til boða gisting í tveggja manna herbergjum og fjölskylduherbergjum en einnig er hægt að deila rúmgóðum 10 manna herbergjum með öðrum gestum. Flest herbergjanna eru með baði. Morgunverður er í boði fram eftir degi.