Íslandsbanki hefur í samvinnu við Datamarket þróað sérstakt fasteignamælaborð þar sem hægt er að skoða þróun íbúðamarkaðarins og lykiltalna honum tengdum. Til að mynda er hægt að fletta upp verðþróun íbúða/einbýla í einstökum hverfum höfuðborgarsvæðisins og eftir landshlutum. Hægt er að skoða þróunina allt frá árinu 1990.

Í tilkynningu segir að markmiðið að upplýsa kaupendur og seljendur fasteigna og aðra aðila um fasteignamarkaðinn og helstu lykiltölur honum tengdum og auka þannig gagnsæi og upplýsingagjöf á markaðnum.

Meðal kaupverð á fermetra á árinu 2012 var hæst á höfuðborgarsvæðinu eða rúmlega 250 þúsund krónur og hefur aldrei verið hærra að nafnverði. Kaupverð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hefur náð sömu hæðum og árið 2007 í krónum talið en það hefur jafnframt tvöfaldast frá árinu 2002. Sé tekið mið af verðlagsþróun þá er raunverð íbúðarhúsnæðis þó enn nokkuð lægra en þegar það fór hæst í árslok 2007.

Fjöldi fullbyggðra íbúðarhúsa á árinu 2011 var 565. Um sex sinnum fleiri íbúðarhúsnæði voru fullgerð árið 2007 eða 3.348. Séu tölur skoðaðar aftur til ársins 1970 hafa aldrei jafn fáar íbúðir verið byggðar á einu ári. Hinsvegar ber að líta á að frá árinu 2000 hafa rúmlega 25.000 íbúðir verið fullkláraðar sem er meira en nokkru sinni fyrr.