Fyrirtæki í hótel- og gistiþjónustu stofnuðu fyrr í dag félag sem var gefið nafnið: Félag fyrirtækja í Hótel- og gistiþjónustu (FHG). Tilgangur félagsins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og eiga samskipti við stjórnvöld um málefni greinarinnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá FHG.

Tilkynninguna í heild sinni má sjá hér að neðan:

Í dag var stofnað Félag fyrirtækja í Hótel- og gistiþjónustu, skammstafað FHG.  Í stjórn félagsins eru Kristófer Oliversson, Miðbæjarhótel/CenterHotels, Unnur Steinsson,  Hótel Fransiskus, Árni Sólonsson, Capitalhotels, Bjarki Júlíusson, Room With a View, Steinþór Jónsson, Hótel  Keflavík, Gyða Árný Helgadóttir,  Hótel Vos, Geir Gígja, Hotel Cabin, Ragnar Bogason, Hótel Selfoss og Þráinn Lárusson, 701 Hotels.

Formaður félagsins er Kristófer Oliversson og varaformaður Gyða Árný Helgadóttir.

Tilgangur félagins er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og eiga samskipti við sjórnvöld um málefni greinarinar.  Flestir félagsmenn eru einnig félagsmenn í SAF og hyggjast vera það áfram.

Nú er nýbúið að hækka gistináttaskatt, sem leggst mjög ójafnt á þá sem selja gistingu og brýn þörf á að leggja hann af.  Þá hækka fasteignagjöld jafnt og þétt auk þess sem lagaumhverfi greinarinnar er ábótavant.  Má þar nefna heimagistingu sem þarf sérstök starfsleyfi og er farin að hafa umtalsverð áhrif á markaðsstöðu löglega rekinna fyrirtækja.

Á síðasta ári gerði KPMG skýrslu um stöðu greinarinar og kom þar fram að EBITDA framlegð á höfuðborgarsvæðinu var rúm 6% og neikvæð um10% á landsbyggðinni, janúar til júní.  Það sér hver maður að við slíkar aðstæður er ekkert svigrúm til aukinna álaga af hálfu hins opinbera.

Ísland liggur þegar undir  ámæli fyrir að vera dýrt heim að sækja, í því ljósi er öfugsnúið að stefnt sé að auknum opinberum álögum meðan fyrirtækin hamast við að  hagræða í rekstri til að ná niður verði.