Nefnd á vegum fjármálaráðherra hefur skilað drögum að frumvarpi til nýrra laga um fasteignalán. Þetta kemur fram í frétt á vefsvæði Fjármálaráðuneytisins. Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði nefndina 12 janúar á síðasta ári sem falið var að semja frumvarp til nýrra laga um fasteignalán sem tæki mið af tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/17/ESB um lánssamninga fyrir neytendur í tengslum við íbúðarhúsnæði (fasteignalánatilskipunin).

Í fréttinni segir að gert sé ráð fyrir að frumvarpið verði lagt fram á nk. haustþingi og miðast gildistaka þess við 21. mars 2016.

Helstu breytingar frá gildandi rétti eru eftirfarandi:

  1. Gerðar eru almennar kröfur um starfskjör starfsmanna lánveitenda og lánamiðlara og sértækar kröfur um starfskjör starfsfólks lánveitenda sem framkvæmda lánshæfis- og greiðslumat.
  2. Gerðar eru kröfur um hæfni og þekkingu starfsfólks lánveitenda og lánamiðlara.
  3. Kveðið er á um að óheimilt sé að binda samning um fasteignalán eða lánstilboð því skilyrði að neytandi geri samning um kaup á annarri aðgreindri fjármálaafurð eða fjármálaþjónustu.
  4. Lögð aukin áhersla á þær útskýringar sem neytandi á rétt á fyrir lánveitingu.
  5. Fjallað er sérstaklega um hvernig lánaráðgjöf skuli fara fram og skýrar skilið á milli lánaráðgjafar og lánveitingar en áður hefur verið gert.
  6. Gerð er krafa um að lánamiðlarar skrái sig hjá Fjármálaeftirlitinu áður en þeim er heimilt að veita þjónustu. Jafnframt er þeim gert skylt að eiga aðild að úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki.
  7. Ákveði lánveitanda að veita lán þrátt fyrir neikvætt greiðslumat skal hann útskýra þá ákvörðun fyrir neytanda og skjalfesta rökstuðning*.
  8. Lagt er til að að Fjármálaeftirlitinu verði veitt heimild, innan ákveðins ramma, til að setja reglur um hámark veðsetningarhlutfalls fasteignalána til neytenda að fengnum tilmælum frá fjármálastöðugleikaráði.
  9. Lagt er til að hámarki uppgreiðslugjalds verði breytt til að stuðla að auknu framboði lána með föstum vöxtum.

Hér er hægt að sjá drögin að frumvarpinu í heild sinni.