Samið hefur verið um byggingu nýs 60 rýma hjúkrunarheimilis í Reykjanesbæ. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar, undirrituðu fyrir nokkru samning um nýtt 60 rýma hjúkrunarheimili. Gert er ráð fyrir að heimilið verði tekið í notkun um mitt ár 2023.

Áætluð stærð nýja hjúkrunarheimilisins er um 3900 fermetrar og áætlaður framkvæmdarkostnaður er um 2.435 milljónir króna. Samkvæmt samningnum er framkvæmdin á höndum sveitarfélagsins. Reykjanesbær annast fjármögnun framkvæmdakostnaðar en heilbrigðisráðuneytið greiðir sveitarfélaginu 85% kostnaðarins á árunum 2020-2023 í samræmi við framvindu verksins. Sveitarfélagið mun greiða 15% af framkvæmdakostnaði.

„Þessi stækkun er stórt skref fyrir okkur Suðurnesjamenn, enda þörfin á fleiri hjúkrunarrýmum brýn. Þetta ár verður nýtt til undirbúnings á framkvæmdinni og 2. júlí síðastliðinn var til dæmis farið yfir tillögu að breytingum á deiliskipulagi og hún send áfram til Skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu. Við gerum ráð fyrir að framkvæmdirnar hefjist af fullum krafti á næsta ári og að heimilið verði svo tekið í notkun um mitt ár 2023,“ er haft eftir Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, í fréttatilkynningu.

Nýbyggingin mun rísa við hlið núverandi hjúkrunarheimlis á Nesvöllum og verður samtengd því í samræmi við áherslur Reykjanesbæjar. Með tilkomu heimilisins fjölgar hjúkrunarrýmum í bæjarfélaginu um 30, en hin 30 rýmin koma í stað þeirrar rýma sem nú eru í notkun hjúkrunarheimilinu á Hlévangi, en því verður þá lokað.

„Þetta er gleðidagur sem markar upphafið að stórri og mikilvægri framkvæmd fyrir íbúa á þessu svæði. Hjúkrunarrýmum fjölgar umtalsvert með þessari framkvæmd sem er mikilvægt. Þá er ekki síður gott til þess að vita að hér verður aðstaða sem stenst kröfur um aðbúnað eins og best verður á kosið, bæði fyrir íbúa og starfsfólk,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.