Nýtt hótel mun opna í miðbæ Ísafjarðar þann 1. júní næstkomandi og hefur það fengið nafnið Hótel Horn. Í tilkynningu segir að nafnið sé skírskotun í magnaða náttúru Hornstranda og Hornbjargs, þangað sem æ fleiri ferðamenn sækja. Hótelið er staðsett á gamla kaupfélagshorninu á Ísafirði og hefur mikið verið lagt í endurbætur á húsinu sem staðið hafa yfir í allan vetur.

Haft er eftir Áslaugu Alfreðsdóttur, hótelstjóra á Hótel Ísafirði sem rekur Hótel Horn, að gaman sé að geta bætt við vönduðu gistirými í bænum í þessu sögufræga húsi, sem m.a. hafi hýst bæjar- og kaupfélagsskrifstofur. Mikill gangur sé í vestfirskri ferðaþjónustu og þetta sýni að fyrirtækið hafi trú á því að ferðamönnum muni enn fjölga.

Sérstaklega er stílað inn á fjölskyldufólk á Hótel Horni, en herbergin eru mjög rúmgóð, sum þeirra er einnig hægt að tengja saman til að skapa enn stærra rými, auk þess sem sérstök fjölskylduherbergi eru í boði. Hótelið verður opnað í tveimur áföngum. Í sumar verða 12 herbergi tekin í notkun á annarri hæð hússins en næsta sumar verða önnur 12 herbergi opnuð á þriðju hæð.