Nýtt húsnæði sendiráðs Íslands í Brussel var opnað við hátíðlega athöfn á föstudaginn af Davíð Oddssyni, utanríkisráðherra. Sendiráðið er jafnframt fastanefnd Íslands gagnvart Evrópusambandinu og fylgir eftir framkvæmd EES-samningsins gagnvart því. Í dag starfa 20 manns við sendiráðið. Nýja húsnæðið er við Schuman-torgið í Brussel þar sem flestar aðalstofnanir Evrópusambandsins hafa skrifstofur sínar. Sendihera Íslands í Brussel er Kjartan Jóhannsson.