Slippurinn Akureyri lauk í síðasta mánuði uppsetningu á nýju lestarkerfi í Björgu EA 7, ferskfisktogara í eigu Samherja. Kerfið byggir á því að tómum kerjum er lyft á sjálfvirkan hátt úr magasíni í lest og upp á vinnsluþilfar þar sem kerunin fer fram. Full ker af vinnsluþilfari eru síðan send með lyftu niður í lest, þar sem kerastæðum er safnað saman í magasíni sem rúmar allt að 35 ker. Lestarkerfið byggir að mestu á lestarkerfinu sem Slippurinn hannaði og smíðaði í Kaldbak EA 1 sem reynst hefur í alla staði mjög vel.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Slippsins.

Kjartan Vilbergsson, yfirvélstjóri á Björgu, segir að lestarkerfið bæti alla vinnuaðstöðu fyrir hásetana en það bæði auðveldar okkur vinnuna og eykur öryggi til muna. Það er mikill kostur að kerfið er einfalt og skilvirkt. Við fórum með kerfið nýtt út í brælutúr og það gekk hnökralaust,“ segir Kjartan í viðtali við heimasíðuna.

Á meðan að uppsetningu lestarkerfisins stóð sinntu starfsmenn Slippsins öllu almennu viðhaldi á skipinu. Sett var upp krapakerfi og gerðar minni háttar breytingar fremst á vinnsluþilfari til að aðlaga vinnslubúnaðinn lestarkerfinu og kerunaraðstöðunni. Skipið var jafnframt tekið upp í flotkví, það málað og aðalvél tekin upp.

Verkefni sem þessi, þ.e.a.s. þar sem saman fer almennt viðhald og breytingar á fiskiskipi auk endurnýjunar á vinnslubúnaði þess, eru að verða æ algengari hjá Slippnum, segir í fréttinni.