Úrvalsvísitalan endaði í 4.488,67 stigum í dag sem er nýtt met. Hækkunin jafngildir 2,07%. Velta á hlutabréfamarkaði var mjög mikil í dag og nam 19.151 milljónum króna. Mest varð velta með bréf Íslandsbanka.

Bréf Burðaráss hækkuðu mest í dag en þau hækkuðu um 3,53%. Bréf KB banka hækkuðu um 3,05%. Bréf Íslandsbanka hækkuðu um 2,08% og bréf Landsbankans um 1,98%. Mest varð lækkunin á bréfum Flögu eða um 6,29%.