Nú liggur fyrir að skipakomur á Grundartanga árið 2008 voru fleiri en nokkru sinni fyrr að því er kemur fram í frétt á heimasíðu Faxaflóahafna.

Flutningar um höfnina eru um 1.3 milljón tonn, en fjöldi skipa á árinu var 271, sem er nokkur aukning frá því sem best þekktist áður.  Elkem hefur m.a. verið að breyta framleiðslu sinni sem kallar á meiri umsvif en einnig hefur framleiðsla Norðuráls aukist á síðustu árum.