Samskip hyggjast gera stórfelldar breytingar á siglingaleiðum sínum nú í október. Í stað tveggja leiða verður nú siglt á þremur þar sem tvær, Norðurleið og Suðurleið, fara til Evrópu og ein, Strandleið, þjónar millilandaflutningum frá höfnum á Norður- og Austurlandi um Færeyjar til Evrópu. Við þessar breytingar bætist eitt skip í flotann. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Afhending í byrjun viku
Með nýju og breyttu siglingakerfi eru Samskip sögð koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna sem kalli á styttri flutningstíma, aukinn áreiðanleika og aukna tíðni ferða. Fyrir innflutning sé þjónustan sniðin að því að afhenda vörur á Íslandi snemma í vikunni. Fyrir útflutning sé boðið upp á afhendingar í upphafi viku á lykilmarkaði í Evrópu. Þá sé þjónusta við landsbyggðina efld til muna með vikulegum viðkomum á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi.

Norðurleið er sögð sniðin að þörfum þeirra sem flytja út vörur til meginlandsins og þeirra sem flytja inn vörur frá Skandinavíu, jafnframt því að þjóna Færeyjum. Suðurleið er sögð vera sniðin að þörfum viðskiptavina sem flytja vörur til og frá Bretlandi og að innflutningi frá meginlandinu. Suðurleið tengi jafnframt Vestfirði beint inn á Bretland og meginlandið með vikulegum viðkomum á Bíldudal, sem sé ný höfn í siglingakerfi Samskipa. Strandleið tengi svo viðkomuhafnir á Norður- og Austurlandi inn á Norðurleiðina í Færeyjum í viku hverri.

Geta betur tekist á við frávik
Þá er haft eftir Pálmari Óla Magnússyni, forstjóra Samskipa á íslandi: „Nýja siglingaáætlunin færir viðskiptavinum okkar margvíslegan ávinning, útflutningur á ferskum afurðum frá Íslandi á mikilvæga markaði í Evrópu í upphafi viku er viðskiptavinum okkar mikils virði. Nú getum við boðið afhendingu á mánudagsmorgni hvort sem er í gegnum Hull í Bretlandi eða Rotterdam í Hollandi inn á mikilvæga markaði í Evrópu.“

Með breytingunum segir Pálmar Samskip jafnframt svara kalli viðskiptavina sinna og geti nú afhent innflutningsvöru degi fyrr en áður í Reykjavík, sem sé fagnaðarefni fyrir marga. „Þjónusta okkar við byggðir landsins er að sama skapi efld verulega, enda bjóðum við nú vikulega komu skips á Bíldudal, Sauðárkrók, Akureyri og Reyðarfjörð. Nýja kerfið er betur í stakk búið til að takast á við frávik sem kunna að verða vegna veðurs, líkt og við þekkjum allt of vel hér á Norðurslóðum. Við erum sannfærð um að þessu nýja siglingakerfi verður vel tekið af öllum þeim sem þurfa á flutningsþjónustu að halda enda er það afrakstur samtals sem við höfum átt um nokkurt skeið við viðskiptavini okkar.“