Breytingar hafa verið gerðar á skipuriti Flugmálastjórnar Íslands með því að færa stjórnsýslu, vottun og eftirlit með flugleiðsögu- og flugvöllum undir eitt svið. Það er gert til þess að leggja áherslu á mikilvægi þessa málaflokks til jafns við vottun og eftirlit með flugrekstri og lofthæfi.

Flugmálastjórn fer með leyfisveitingar, eftirlit og vottun á sviði flugmála í landinu, og er meginhlutverk hennar að hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan,