Samkaup hafa sett á markað smáforrit undir nafninu Samkaup – verslun við hendina sem gefur viðskiptavinum afslátt í ríflega 60 verslunum félagsins. Appið er hannað af Coop í Danmörku.

Appið er stafrænt tryggðarkerfi Samkaupa og fá viðskiptavinir 2% afslátt af öllum vörum í formi inneignar í hvert sinn sem þeir versla. Meðalsparnaður viðskiptavina er um 50 þúsund krónur á ári auk þess sem þeir fá aðgang að sérstökum tilboðum." Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkaupum.

Gunnar Egill Sigurðsson
Gunnar Egill Sigurðsson
Appið veitir afslátt í öllum verslunum okkar um land allt og með appinu fá viðskiptavinir meiri afslátt en þekkist í öðrum matvöruverslunum. Með afslættinum safna viðskiptavinir upp inneign sem þeir geta síðan nýtt hvenær sem þeim hentar – í næstu búðarferð á eftir eða safnað honum upp og notað til að gera öll matarinnkaup fyrir jól,“ er haft eftir  Gunnari Agli Sigurðssyni, framkvæmdastjóra verslunarsviðs Samkaupa. „ Appið er bylting á matvörumarkaði en við erum að fylgja nýjustu tækni og færa matvöruverslunina nær viðskiptavinum okkar. Við hófum innleiðingu á appinu um síðustu jól þegar starfsfólk Samkaupa fékk aðgang en nú eru um 10 þúsund ánægðir viðskiptavinir komnir með það.“

Í tilkynningunni segir að appið sé einfalt í notkun. Viðskiptavinir skanna inn QR -kóða með símanum við afgreiðslukassann í hvert sinn sem þeir versla og afslátturinn kemur strax inn í formi inneignar. Í appinu geta viðskiptavinir séð hversu mikinn afslátt þeir fá hverju sinni og hver uppsöfnuð inneign þeirra er auk þess sem þeim standa til boða reglulega sértilboð á matvöru.

Viðskiptavinir geta skráð greiðslukort í appið og notað það sem milliliðalausa greiðslu og fá rafræna kvittun senda beint í appið . Appið gefur þannig góða yfirsýn yfir mánaðarleg matarinnkaup.

Samkaup rekur rúmlega 60 verslanir víðsvegar um landið undir vörumerkjunum Nettó, Krambúðin, Kjörbúðin, Iceland og Samkaup Strax og gildir afslátturinn sem fylgir appinu í öllum verslunum félagsins.  Hægt er að nálgast Samkaup – verslun við hendina frítt í vefverslunum App Store ( Apple ) og Google Play store ( Android ).