Stjórn 365 hf. hefur ákveðið að nýta heimild til hækkunar hlutafjár að fjárhæð kr. 60.800.000 eins og samþykktir félagsins kváðu um. 365 hf. hefur keypt allt hlutafé Innn hf. af Fons Eignarhaldsfélagi hf. og greitt að fullu með framangreindum 60.800.000 hlutum í 365 hf.

Heildarhlutafé fyrir hækkun var kr. 3.368.807.348 en verður 3.429.607.348 eftir hækkun. Hún tekur gildi er hún hefur verið skráð hjá fyrirtækjaskrá.


Innn hf. ráðgjafa- og hugbúnaðarhús var stofnað 1997 og er eitt elsta fyrirtækið á Íslandi á sínu sviði. Innn hefur frá upphafi sérhæft sig í veflausnum með þróun vefumsjónarkerfisins LiSA. Velta ársins 2006 nam um 132 milljónum .kr. og EBITDA nam 27 milljónum króna. Áætlanir fyrir árið 2007 gera ráð fyrir að velta Innn hf. verði um 180 milljónir króna og EBITDA um 40 milljónur króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins eru engar. Félagið hefur verið rekið með hagnaði síðustu 3 árin.

Sigrún Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Innn hf. segir í tilkynningu: ?Ég er mjög ánægð að Innn geti nú tekið næstu skref í örum vexti sínum með aðkomu nýrra eigenda og sé ég mörg sóknartækifæri fyrir fyrirtækið innan samsteypu 365.?

Í tilkynningu kemur fram að undir stjórn Sigrúnar hefur velta Innn vaxið að meðaltali um 40% á ári síðustu þrjú ár. Sigrún mun starfa áfram sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og eru engar breytingar fyrirhugaðar á starfseminni.

Ari Edwald forstjóri 365 hf.: ?Félagið hefur ekki áform um breytingar á rekstri Innn hf. og þeirri stefnu sem félagið hefur fylgt, en telur að starfsemi félagsins muni styrkja starfsemi 365 hf. á sviði vefmiðlunar.