Greining Glitnis hefur hækkað verðmatsgengi Alfesca úr 4,4 krónum á hlut í 5,0 kr. Nýtt verðmatsgengið er lítillega undir gengi á markaði (5,09). Ráðleggur Glitnir fjárfestum að halda bréfum í félaginu til lengri tíma litið. Verðmat Glitnis á Alfesca er nú 29,2 milljarðar króna. Markgengi (e. target price) greingar Glitnis á félaginu en markgengi segir til um hvar líklegt er að félagið standi að sex mánuðum liðnum. Greining Glitnis nefnir að helstu ástæður fyrir hækkuðu verðmatsgengi nú eru lækkandi laxaverð, sala á frystiverksmiðju félagsins í Frakklandi og loks lægri ávöxtunarkrafa.