Greiningardeild KB banka hefur gefið út nýtt verðmat á fimm félögum í Kauphöll Íslands, Alfesca, Bakkavör, Marel, Össuri og Vinnslustöðinni.

Um er að ræða stutta samantekt um hvert félag sem gefin er út í ritinu Small Cap Navigator, samnorrænni útgáfu Greiningardeilda Kaupþings Banka á Norðurlöndunum. Small Cap útgáfan nær til 135 félaga að markaðsvirði um og undir 2 milljörðum evra sem samsvarar 180 milljörðum króna.