Greiningardeild Kaupþings banka hefur gefið út nýtt verðmat á Landsbankann og lækkar verðmat sitt, frá síðasta verðmati sem birtist þann 10. júlí, um 3,3%. Verðmatið gefur verðmatsgengið 26,5 krónur á hlut og tólf mánaða markgengi 29,6.

Gengi bankans á markaði er nú 20,80 krónur á hlut.

?Byggt á hagstæðum kennitölusamanburði og nýju verðmatsgengi okkar upp á 26,5 krónur á hlut höldum við ráðgjöf okkar óbreyttri og mælum áfram með kaupum á hlutabréfum Landsbankans," segir greiningardeildin.