Barak Obama forseti Bandaríkjanna hefur aflétt öllum takmörkunum á ferðafrelsi Bandarikjamanna af kúbverskum uppruna til Kúbu. Jafnframt hafa verið afnumdar allar hömlur á því hversu mikla peninga þeir megi senda fjölskyldum sínum búsettum á Kúbu.

Obama lofaði í kosningabaráttu sinni að ryðja úr vegi öllum hindrunum í þessa veru sem settar voru í forsetatíð George Bush.

Bloomberg fréttaveitan skýrði frá þessu.