Barack Obama felldi tár þegar hann þakkaði starfsfólki og sjálfboðaliðum sem unnu við framboðs hans í forsetaslagnum í Bandaríkjunum gegn Mitt Romney og tryggðu honum endurkjör. Framboðsskrifstofa hans hefur birt myndband af þakkarrræðunni sem forsetinn flutti í kosningamiðstöð sinni í Chicago á miðvikudag.

Eins og sjá má á myndskeiðinu átti forsetinn erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann þakkaði fólkinu fyrir störf þess.