Málefni Miðausturlanda, einkum Sýrlands, fengu ítarlega umfjöllun á norrænu forsætisráherranna með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Þetta segir í tilkynningu sem forsætisráðuneytið sendi fjölmiðlum í kvöld. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd.

Bandaríkjaforseti rakti rök Bandaríkjastjórnar fyrir takmarkaðri hernaðaríhlutun, sem nú er til umfjöllunar á Bandaríkjaþingi. Forsætisráðherra áréttaði mikilvægi þess að leita áfram friðsamlegra lausna á deilunni. Þar hefði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna meginhlutverki að gegna og brýnt væri að öryggisráðið axlaði ábyrgð á því hlutverki sínu.

Á fundinum voru málefni Norðurslóða einnig rædd. Jafnframt voru ræddar öryggisáskoranir 21. aldar og auknir möguleikar Norðurlandanna og Bandaríkjanna til samstarfs á ýmsum sviðum, m.a. á sviði öryggismála, orkumála og samstarfs á norðurslóðum, ekki síst á vettvangi Norðurskautsráðsins.