Barack Obama Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að hann hefði neitað umsókn kanadíska olíufyrirtækisins Keystone um byggingu 1.900 kílómetra langrar olíuleiðslu.
Hefði leiðslan verið byggð hefði hún flutt því sem um nemur 800 þúsund olíutunnum á dag til Bandaríkjanna.
Í tilkynningu frá Hvíta húsinu segir Obama að áhrif leiðslunnar á bandaríska hagkerfið hefðu ekki verið nægileg til þess að réttlæta mætti áhrifin sem leiðslan hefði á loftslagið.
Obama vonast með þessari neitun, sem var að mestu táknræn, til að setja tóninn fyrir leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna sem haldinn verður í desember næstkomandi - og mun einmitt fjalla sérstaklega um loftslagsmál.
Ekki eru allir sáttir við neitunina, og sérstaklega hefur Repúblikanaflokkurinn bandaríski sem og lykiláhrifavaldar í bandarískum olíuiðnaði látið í sér heyra.