Atvinnuleysi á meðal OECD ríkjanna mældist 6% í september  og helst óbreytt á milli mánaða en eykst hins vegar um 0,4% milli ára.

Þetta kemur fram í tölum frá OECD.

Atvinnuleysi á evru-svæðinu mældist í september 7,5%, helst einnig óbreytt milli mánaða en hækkar um 0,2% milli ára. Ekki liggja fyrir tölur um atvinnuleysi á evru svæðinu í október.

Í Bandaríkjunum mældist atvinnuleysi í október mánuði og hækkar um 0,4% milli mánaða en 1,7% milli ára.

Í Japan mældist atvinnuleysi í september 4% og lækkar um 0,1% milli mánaða.

Í Frakklandi mældist atvinnuleysi í september 7,9%, lækkar um 0,1% milli mánaða og einnig um 0,1% milli ára.

Í Þýskalandi mældist atvinnuleysi 7,1% í september, lækkar um 0,1% milli mánaða og lækkar um 1,1% milli ára.

Í Kanada mæltist 6,2% atvinnuleysi í október, hækkar um 0,1% milli mánaða og 0,4% milli ára.