Mat Reitunar á lánshæfi Kópavogs er i.AA2 með stöðugum horfum, einkunn er óbreytt frá fyrra ári. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Í rökstuðningi Reitunar segir: „Kópavogur er annað stærsta sveitarfélag landsins með ríflega 35 þúsund íbúa og staðsett við hlið höfuðborgarinnar. Árleg fjölgun íbúa er að jafnaði 2-4%. Sveitarfélög eru hluti hins opinbera kerfis og byggja þau afkomu sína að mestu á skatttekjum. Nokkuð bjart er framundan í fjármálum sveitarfélagsins að öðru óbreyttu þar sem efnahagshorfur eru almennt nokkuð góðar, góð eftirspurn hefur verið eftir lóðum fyrir nýbyggingar og innviðir Kópavogs eru traustir. Mikilvægt er hins vegar að haldið verði vel utan um kostnað og fjárfestingar og að áfram verði gætt aðhalds í rekstri.“

Bent er á að skuldahlutfall hafi lækkað hratt, árið 2017 hafi skuldaviðmið Kópavogsbæjar farið niður í 133% og þannig undir viðmið Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.