Fimm gefa kost á sér til stjórnar N1 ehf. á aðalfundi félagsins sem haldinn verður á þriðjudaginn í næstu viku. Aðalmenn eru þeir sömu og skipað hafa stjórnina síðasta ár. Það eru Helgi Magnússon, Hreinn Jakobsson, Kristín Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir og Þór Hauksson. Þá bjóða Kristinn Pálmason og Marta Eiríksdóttir sig fram sem varamenn í stjórn.

Þar sem fimm eru í stjórn og tveir í varastjórn verður sjálfkjörið í stjórn félagsins.