Sjálfkjörið var í stjórn Nýherja á aðalfundi félagsins í morgun. Fundarstjóri bar fyrst upp tillögu um 3 aðalmenn í stjórn Nýherja hf. Þar sem ekki voru fleiri í kjöri lýsti fundarstjóri eftirtalda menn sjálfkjörna: Benedikt Jóhannesson, Árna Vilhjálmsson og Guðmund Jóh. Jónsson.


Fundarstjóri bar því næst upp tillögu um 1 varamann í stjórn Nýherja hf. Þar sem ekki voru fleiri í kjöri lýsti fundarstjóri Örn D. Jónsson sjálfkjörinn.